Persónuvernd
──────────── ✦ ────────────
Almennt
MooMoo ehf., kt. 640326-0500, rekur netverslunina Lena Verslun (lenaverslun.is) og er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnað er í starfsemi félagsins.
Við leggjum áherslu á að meðhöndla persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (GDPR).
──────────── ✦ ────────────
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að veita þjónustu:
Við kaup
Nafn
Netfang
Símanúmer
Heimilisfang
Greiðsluupplýsingar (í gegnum örugga greiðslugátt)
Upplýsingar um pöntun
Við notkun vefsíðu
IP tala
Vafragögn og hegðun á síðu
Smáköku (cookies)
Við skráningu á póstlista
Netfang
Nafn
Afmælisdagur
Símanúmer
──────────── ✦ ────────────
Tilgangur vinnslu upplýsinga
Við notum upplýsingar til að:
- Afgreiða og afhenda pantanir
- Veita þjónustu og svara fyrirspurnum
- Senda upplýsingar um stöðu pantana
- Senda markaðsefni (ef samþykki liggur fyrir)
- Bæta upplifun á vefsíðu og þjónustu
- Birta viðeigandi auglýsingar (remarketing)
──────────── ✦ ────────────
Markaðssetning
Ef þú skráir þig á póstlista eða kaupir hjá okkur, gætum við:
- Sent þér tölvupóst með tilboðum og fréttum
- Sýnt þér auglýsingar á samfélagsmiðlum og öðrum vefsíðum
Þú getur alltaf afskráð þig af póstlista með því að smella á "afskrá" í tölvupósti eða senda okkur línu á lena@lenaverslun.is
──────────── ✦ ────────────
Þriðju aðilar
Við deilum aðeins þeim upplýsingum með nauðsynlegum þjónustuaðilum, t.d.:
- Shopify (vefkerfi)
- Greiðslugáttir (Teya)
- Flutningsaðilar (Dropp, Pósturinn)
- Meta (Facebook/Instagram auglýsingar)
- Google (Analytics og auglýsingar)
- Tölvupóstsþjónustur (Mailchimp)
──────────── ✦ ────────────
Smákökur (cookies)
Við notum smákökur til að:
- Láta vefsíðuna virka rétt
- Greina umferð og notkun á vef
- Sýna viðeigandi auglýsingar
Þú getur stjórnað notkun smákaka í vafranum þínum.
──────────── ✦ ────────────
Varðveisla gagna
Við geymum persónuupplýsingar aðeins eins lengi og þörf er á:
- vegna þjónustu
- vegna lagaskyldu (t.d. bókhald)
──────────── ✦ ────────────
Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- Fá aðgang að upplýsingum um þig
- Fá rangar upplýsingar leiðréttar
- Fá upplýsingum eytt (þar sem við á)
- Andmæla vinnslu
Hafðu samband við okkur ef þú vilt nýta réttindi þín.
──────────── ✦ ────────────
Öryggi
Við gerum viðeigandi ráðstafanir til að vernda upplýsingar, m.a. með öruggum kerfum og aðgangsstýringum.
──────────── ✦ ────────────
Breytingar
Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Nýjasta útgáfa er alltaf aðgengileg á vefsíðu okkar.
──────────── ✦ ────────────
Samskipti
Ef þú hefur spurningar um persónuvernd geturðu haft samband:
MooMoo ehf.
Kt. 640326-0500
Gylfaflöt 5
lena@lenaverslun.is
Síðast uppfært 07.04.2026