Frí heimsending af pöntunum yfir 15.000

HeatBounce Conditioning Heat Protectant

Verð 11,490 kr
Veldu Veldu stærð::

VÖRULÝSING

Ný kynslóð hitavarnar 💗

HeatBounce er létt leave-in hitavörn sem mýkir, greiðir úr flækjum og verndar hárið gegn hita allt að 232°C. Formúlan hjálpar til við að vernda hárið þar sem hitaskemmdir geta orðið og skilar 85% minna hárbroti eftir blástursamkvæmt klínískum prófunum.

HeatBounce er knúið áfram af resilicore™ heat-shielding technology, tækni sem er innblásin af próteinum í náttúrunni sem þola mikinn hita. Ólíkt hefðbundinni hitavörn, sem leggst aðallega utan á hárið, er resilicore™ hannað til að komast dýpra inn í hárstráið og mynda verndandi skjöld þar sem hitaskemmdir geta átt sér stað.

Formúlan er létt en nærandi og hjálpar til við að mýkja, næra og greiða úr hárinu án þess að þyngja það. Hentar öllum hárgerðum og áferðum og má einnig nota í hárlengingar.

Helstu kostir: verndar gegn hita upp að 232°C, dregur úr hárbroti eftir blástur, mýkir og greiðir úr flækjum og hentar bæði í rakt og þurrt hár.

Notkun

Skiptu hárinu í hluta og berðu HeatBounce jafnt í gegnum hárið. Greiddu í gegnum það til að dreifa vörunni vel. Minna er meira – byrjaðu á litlu magni og bættu við eftir þörfum. Hárið á að vera mjúkt og laust við flækjur, en ekki finnast eins og það sé húðað af vöru.

Notaðu í handklæðaþurrt hár fyrir blástur og í þurrt hár áður en þú notar sléttujárn, krullujárn eða önnur hitatæki. K18 mælir með að HeatBounce sé borið á í hvert skipti áður en hiti er notaður, líka ef farið er úr blæstri yfir í hitatæki.

Lena-short description:
Hitavörn + mýkt í einu skrefi. HeatBounce verndar hárið gegn hita allt að 232°C, greiðir úr flækjum og skilur hárið eftir mjúkt, létt og tilbúið í styling. 💗

  • Gylfaflöt 5

    Hægt að sækja strax

  • Auðvelt að skila

    Skoðaðu skilareglurnar <3

  • Lena Lifestyle

    Sértilboð & Exclusive Drops

  • Þarftu aðstoð?

    Hringdu í síma 415-0440

Ný sending af þínum uppáhalds Korean Skincare vörum