Frí heimsending af pöntunum yfir 15.000

Miracle Hair Treatment Shampoo

Verð 12.990 kr

15% afsláttur við skráningu í Lena Lifestyle

Veldu Stærð:

VÖRULÝSING

ELEVEN Australia Miracle Hair Treatment Shampoo er lúxus sjampó sem hreinsar hárið á mildan hátt á meðan það veitir djúpan raka, mýkt og glans.

Þetta er fullkomið sjampó fyrir þig sem vilt heilbrigt, sterkt og silkimjúkt hár án þess að þyngja það.

Formúlan inniheldur hyaluronic sýru, sem bindur raka í hárinu líkt og í húðinni og hjálpar til við að endurheimta líf og mýkt í þurru eða skemmdu hári.


Helstu kostir

  • Gefur djúpan raka og næringu
  • Dregur úr úfnu hári (frizz)
  • Hjálpar til við að fyrirbyggja klofna enda
  • Eykur mýkt og náttúrulegan glans
  • Hentar sérstaklega vel fyrir þurrt eða litað hár

Virk innihaldsefni

  • Hyaluronic sýra – bindur raka og gefur hárinu fyllingu og glans
  • Gúrkuútdráttur – róar hársvörð og styrkir hárið
  • Kamillublóm – hjálpar til við að minnka skemmdir og klofna enda
  • Papaya & rósmarín – bæta mýkt, næringu og líf í hárið

Áferð & upplifun

Létt en nærandi sjampó með ferskum kókos- og lime ilm sem gefur spa-tilfinningu í sturtunni.

Formúlan er súlfatlaus, sem þýðir að hún freyðir minna en venjuleg sjampó en vinnur á sama tíma að því að styrkja hárið við hverja notkun


Fyrir hverja?

  • Þurrt, skemmt eða rakasnauð hár
  • Litað hár sem þarf vernd og næringu
  • Þig sem vilt sléttara, mýkra og glansmeira hár
  • Allar hárgerðir sem þurfa extra raka

Notkun

Berið í blautt hár, nuddið vel og skolið.
Endurtakið ef þarf – sérstaklega ef þú vilt meiri hreinsun eða freyðingu.

 


  • Gylfaflöt 5

    Hægt að sækja strax

  • Auðvelt að skila

    Skoðaðu skilareglurnar <3

  • Lena Lifestyle

    Sértilboð & Exclusive Drops

  • Þarftu aðstoð?

    Hringdu í síma 415-0440

Ný sending af þínum uppáhalds Korean Skincare vörum