Teboðið special
Teboðið special Translation missing: is.products.product.backorder
VÖRULÝSING
VÖRULÝSING
Í þessum pakka kaupiru AirWash, Give Me Hold og Pink Collagen Mask og færð eftirfarandi ókeypis með:
- Eleven Australia Miracle Hair Treatment 10ml
- Eleven Australia Miracle Hair Mask 35ml
- Eleven Australia Smooth Me Now Thermal Spray 50ml
- Eleven Australia Limited Edition greiða
- Eleven Australia Limited Edition kassi
K18 AirWash
Vinsælasta varan okkar hingað til! Þegar dagarnir líða og hárið byrjar að missa volume og léttleikann sinn, grípur AirWash inn með háþróaðri tækni sem fjarlægir fitu og lykt í stað þess að fela hana. Virkar ótrúlega vel þegar hárið hefur ekki verið þrifið í 2-3 daga, þú einfaldlega spreyjar nokkrum sinnum í rótina og endana og hárið lítur út eins og nýþvegið 🩷
Medicube PDRN Pink Collagen Gel Mask
Þetta er maski sem húðin þín drekkur bókstaflega í sig. Formúlan inniheldur PDRN og kollagen sem hjálpa til við að styrkja húðina, bæta teygjanleika og gefa henni fyllingu og ljóma. Á sama tíma veitir hún djúpan raka og róar húðina þannig hún verður sléttari, mýkri og með fallegt “glass glow”.
Eleven Australia Miracle Hair Treatment
Margverðlaunuð leave-in meðferð sem sameinar allt sem hárið þitt þarf í einni vöru. Raka, vernd, mýkt og glans. Formúlan veitir 11 mismunandi kosti í einni notkun, þar á meðal raka, hitavörn, viðgerð og vernd gegn sólaráhrifum, sem gerir hana að fullkomnu “all-in-one” hárvöru fyrir daglega notkun.
Eleven Australia Miracle Hair Mask
Djúpnærandi hármaski sem endurheimtir raka, styrkir hárið og skilur það eftir mjúkt, slétt og heilbrigt. Þetta er fullkomin meðferð fyrir þig sem vilt gefa hárinu extra umhirðu, sérstaklega ef það er þurrt, skemmt eða þarfnast viðgerðar.
Eleven Australia Give Me Hold Hairspray
Létt og fjölhæft hársprey sem veitir náttúrulegt, sveigjanlegt hald án þess að þyngja hárið. Spreyið hentar bæði við mótun og sem lokaskref í hárgreiðslunni, gefur hárinu aukna lyftingu og hjálpar til við að halda raka í skefjum. Hentar öllum hárgerðum.
Eleven Australia Smooth Me Now Thermal Spray
Létt hitavarnarsprey sem verndar hárið við hitamótun og hjálpar til við að halda því mjúku, glansandi og viðráðanlegu. Spreyið dregur úr úfningi og frizzi, auðveldar mótun og hjálpar til við að móta fallegar krullur. Nærandi formúlan veitir hárinu aukna mýkt og glans án þess að þyngja það. Hentar öllum hárgerðum og er tilvalið fyrir daglega hárumhirðu.
Teboðið special Translation missing: is.products.product.backorder

















