Miracle Hair Treatment Oil Elixir

Verð 8.990 kr

15% afsláttur við skráningu í Lena Lifestyle

VÖRULÝSING

 

ELEVEN Australia Miracle Hair Treatment Oil Elixir er létt og nærandi hár­olía sem gefur hárinu strax glans, mýkt og djúpan raka án þess að þyngja það.

Þetta er fullkomin vara fyrir þig sem vilt sléttara, heilbrigðara og betur útlítandi hár – hvort sem þú notar hana sem lokaskref í stílingu eða til að endurnæra þurrt hár yfir daginn.

Formúlan er rík af nærandi olíum sem hjálpa til við að slétta hárið, draga úr úfnu hári (frizz) og vernda gegn umhverfisáreiti á sama tíma og hún gefur fallegan, náttúrulegan glans.


Helstu kostir

Gefur strax glans og mýkt
Dregur úr úfnu hári (frizz)
Sléttir hárið og gerir það viðráðanlegra
Nærir og styrkir þurrt og skemmt hár
Létt formúla sem þyngir ekki hárið


Virk innihaldsefni

Argan olía – nærir hárið og gefur djúpan glans
Macadamia olía – mýkir og styrkir hárið
Sólblómaolía – verndar og hjálpar til við að halda raka
Avocado olía – gefur næringu og eykur teygjanleika


Áferð & upplifun

Létt og silkimjúk olía sem dreifist auðveldlega í hárið og dregst hratt inn án þess að skilja eftir fitukennda áferð.

Skilur hárið eftir mjúkt, slétt og glansandi með heilbrigðu “salon finish”.


Fyrir hverja?

Þurrt, skemmt eða úfið hár
Litað hár sem þarf extra næringu og vernd
Þig sem vilt glans og sléttleika án þess að þyngja hárið
Allar hárgerðir sem þurfa mýkt og raka


Notkun

Setjið lítið magn í lófa og dreifið jafnt í rakt eða þurrt hár, sérstaklega í lengdir og enda.

Má nota daglega sem lokaskref í stílingu eða til að fríska upp á hárið yfir daginn.

 

  • Gylfaflöt 5

    Hægt að sækja strax

  • Auðvelt að skila

    Skoðaðu skilareglurnar <3

  • Lena Lifestyle

    Sértilboð & Exclusive Drops

  • Þarftu aðstoð?

    Hringdu í síma 415-0440

Ný sending af þínum uppáhalds Korean Skincare vörum