Frí heimsending af pöntunum yfir 15.000

Alter Ego Passion Color Mask

Verð 980 kr
Veldu Color: Silver
Veldu Color: Silver

VÖRULÝSING

Liturinn þinn – bara ferskari, glansandi og líflegri ✨

Passion Color Mask frá Alter Ego Italy er nærandi litatóna maski sem frískar upp á hárlitinn, eykur glans og gefur hárinu fallega, líflega tóna – fullkominn á milli hárgreiðslutíma eða þegar þú vilt gefa litnum smá extra boost.

Maskinn hentar bæði náttúrulegu og lituðu hári og gerir þér kleift að prófa nýja tóna án varanlegs hárlitar. Formúlan nærir og mýkir hárið á sama tíma og litapigmentin gefa litnum meiri dýpt og glans.

Nýja formúlan er vegan og inniheldur 96% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna. Hún er auðguð með Chlorella Vulgaris, hvítum lúpínu og endurnýttri appelsínukvoðu sem hjálpa til við að næra og vernda hárið og skilja það eftir einstaklega mjúkt og glansandi.

Af hverju við elskum hann ♡

• Frískar upp á og viðheldur hárlitnum á milli litana
• Gefur fallega, líflega tóna og mikinn glans
• Nærir, mýkir og kondisjonerar hárið
• Tímabundinn litur – tilvalinn til að prófa nýjan tón
• Hægt er að blanda mismunandi tónum saman
• Vegan formúla
• 96% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna
• Virkar á aðeins 3–15 mínútum

Notkun

Þvoðu hárið og handklæðaþurrkaðu það. Settu á þig hanska og berðu maskann jafnt í lengdir og enda. Láttu hann liggja í hárinu í 3–15 mínútur, eftir því hversu mikinn lit og styrk þú vilt, og skolaðu síðan vandlega úr.

Pro tip: Því lengur sem maskinn fær að liggja í hárinu, því sýnilegri getur tónninn orðið. Niðurstaðan fer einnig eftir grunnlit, ástandi og hversu ljóst hárið er.

  • Gylfaflöt 5

    Hægt að sækja strax

  • Auðvelt að skila

    Skoðaðu skilareglurnar <3

  • Lena Lifestyle

    Sértilboð & Exclusive Drops

  • Þarftu aðstoð?

    Hringdu í síma 415-0440

Ný sending af þínum uppáhalds Korean Skincare vörum