Frí heimsending af pöntunum yfir 15.000

Rice Pure 5% Niacinamide Capsule Serum – 30 ml

Verð 5,390 kr

VÖRULÝSING

Jafnari húð, meiri ljómi og sterkur húðbarrier. 🤍

Rice Pure 5% Niacinamide Capsule Serum er létt og rakagefandi serum með 5% niacinamide sem hjálpar til við að jafna ásýnd húðarinnar, bæta ójafna áferð og gefa húðinni tærari og heilbrigðari ljóma.

Það sem gerir serumið sérstaklega spennandi eru örsmá ceramide-hylki sem bráðna inn í húðina við notkun. Ceramides hjálpa til við að styðja við og styrkja náttúrulegan húðbarrier, halda raka betur í húðinni og gefa henni fyllri og mýkri ásýnd.

Formúlan inniheldur einnig hrísgrjónaþykkni sem hjálpar til við að næra og mýkja húðina ásamt rakagefandi innihaldsefnum sem halda henni rólegri og vel rakri.

Létt áferðin smýgur hratt inn í húðina án þess að skilja eftir þunga eða klístraða tilfinningu – fullkomið serum fyrir daglega notkun.

Af hverju við elskum það ♡

  • Inniheldur 5% niacinamide
  • Hjálpar til við að jafna húðlit og ójafna ásýnd
  • Gefur dauflitaðri húð fallegan og heilbrigðan ljóma
  • Hjálpar til við að bæta og slétta áferð húðarinnar
  • Ceramide-hylki styðja við og styrkja húðbarrierinn
  • Hjálpar húðinni að viðhalda raka
  • Inniheldur nærandi hrísgrjónaþykkni
  • Létt og rakagefandi áferð
  • Án viðbætts ilms
  • Hentar öllum húðgerðum

Lykilinnihaldsefni

5% Niacinamide
Hjálpar til við að jafna ásýnd húðarinnar, vinna gegn daufri húð og gefa henni tærari og jafnari ljóma.

Ceramide NP
Styður við náttúrulegan húðbarrier og hjálpar húðinni að halda betur í raka fyrir mýkri og fyllri ásýnd.

Hrísgrjónaþykkni
Hjálpar til við að næra og mýkja húðina og styður við heilbrigða og ljómandi ásýnd.

Notkun

Berið lítið magn á hreina húð eftir toner. Dreifið yfir andlit og háls og klappið varlega inn í húðina svo ceramide-hylkin leysist upp og serumið dragist vel inn.

Notist kvölds og morgna og fylgið eftir með rakakremi. Ljúkið morgunrútínunni alltaf með sólarvörn.

  • Gylfaflöt 5

    Hægt að sækja strax

  • Auðvelt að skila

    Skoðaðu skilareglurnar <3

  • Lena Lifestyle

    Sértilboð & Exclusive Drops

  • Þarftu aðstoð?

    Hringdu í síma 415-0440

Ný sending af þínum uppáhalds Korean Skincare vörum