Frí heimsending af pöntunum yfir 15.000

Beta-Glucan All In One Gentle Wash

Verð 7,490 kr

VÖRULÝSING

Face • Body • Hair • Mild fyrir alla fjölskylduna

Ein vara fyrir allt. Beta-Glucan All In One Gentle Wash frá IUNIK er einstaklega mildur hreinsir fyrir andlit, líkama, hár og hársvörð, hannaður til að hreinsa vel án þess að skilja húðina eftir þurra eða strekkta.

Mild, örlítið súr formúlan hjálpar til við að viðhalda náttúrulegu rakajafnvægi húðarinnar á meðan Beta-Glucan og þrjár tegundir af Hyaluronic Acid gefa raka og hjálpa húðinni að halda honum eftir hreinsun.

Ríkuleg, kremkennd froðan er mynduð með hreinsiefnum úr plöntum og fjarlægir óhreinindi, umfram fitu, dauðar húðfrumur, fínt ryk og sólarvarnarleifar – án þess að íþyngja eða ertа húðina.

Af hverju við elskum það 🤍

  • All-in-one fyrir andlit, líkama, hár & hársvörð
  • Mild formúla fyrir alla fjölskylduna
  • Pediatric safety-prófað
  • Hentar viðkvæmri og þurri húð
  • Hjálpar til við að hreinsa án þess að húðin verði þurr eða strekkt
  • Beta-Glucan hjálpar til við að gefa raka og draga úr rakatapi
  • 3 tegundir af Hyaluronic Acid fyrir aukna rakagjöf
  • Ríkuleg og kremkennd froða
  • Hreinsiefni úr plöntum
  • Dermatest 5-star prófað
  • Prófað fyrir húðertingu
  • Án 26 algengra ofnæmisvaldandi ilmefna
  • Silicone-free
  • EVE Vegan vottað

Dual Moisturizing Care 💧

Beta-Glucan
Öflugur rakabindandi efnisþáttur unninn úr sveppum sem hjálpar húðinni að viðhalda raka og styður við húðvörnina – svo húðin verði mjúk og þægileg eftir hreinsun.

3 tegundir af Hyaluronic Acid
Vinna saman að því að gefa húðinni raka og hjálpa henni að halda mýkt og raka lengur.

Saman gefa þau húðinni raka á meðan hún er hreinsuð, svo þú sleppur við þessa þurru og strekkta tilfinningu sem getur fylgt hefðbundnum hreinsivörum.

Ein vara – frá toppi til táar

ANDLIT
Hreinsar óhreinindi, umfram fitu, fínt ryk og sólarvarnarleifar á mildan hátt.

LÍKAMI
Notist sem daglegur body wash sem hreinsar án þess að skilja húðina eftir þurra.

HÁR & HÁRSVÖRÐUR
Má einnig nota til að hreinsa hár og hársvörð – fullkomið þegar þú vilt halda rútínunni eins einfaldri og hægt er.

Hentar sérstaklega vel fyrir

Viðkvæma húð • Þurra húð • Rakaskorta húð • Húð sem verður auðveldlega strekkt eftir hreinsun • Börn & fullorðna • Alla fjölskylduna

Notkun

Andlit: Froðið upp með vatni, nuddið varlega yfir andlitið og skolið vandlega.

Líkami: Froðið upp og nuddið yfir raka húð áður en skolað er af.

Hár & hársvörður: Nuddið varlega í hár og hársvörð og skolið vandlega.

Lena tip 🤍
Hin fullkomna less is more vara. Einn mildur hreinsir fyrir andlit, líkama og hár sem öll fjölskyldan getur notað – sérstaklega þegar húðin þarf raka og ró frekar en sterka hreinsun.

  • Gylfaflöt 5

    Hægt að sækja strax

  • Auðvelt að skila

    Skoðaðu skilareglurnar <3

  • Lena Lifestyle

    Sértilboð & Exclusive Drops

  • Þarftu aðstoð?

    Hringdu í síma 415-0440

Ný sending af þínum uppáhalds Korean Skincare vörum